Höfum verið að uppfæra appið og stjórnborð síðustu daga eins og einhverjir hafa tekið eftir.
Ný iPhone útgáfa er inni og Android útgáfa er rétt ókomin í Play Store. Þessar uppfærslur gefa möguleika á að bæta við viðburðum og bæta virkni á stjórnborði.

Fórum í uppfærslu á server í gærnótt sem endaði á að taka lengri tíma en gert var ráð fyrir og því var appið ekki að virka sem skyldi á meðan. Þökkum þolinmæðina og ef það er eitthvað þá sendið okkur póst.